16. nóvember 2007 klukkan 18:52
Jæjaaaaaaaa.....
Við erum ennþá lifandi, alveg spell meira að segja!
Ástæðan fyrir því að ég hef voða lítið bloggað er að ég fer svo sjaldan í tölvu og þá yfirleitt á lestarstöðinni og þá nenni ég því ekki. EN í dag erum við heima hjá Kristínu og Kára og þá get ég fengið að komast á netið. Við erum að passa tvo grislínga á meðan allt liðið fór á Bubba tónleika:) Anna var búin að vera soldið stressuð fyrir því að vera að fara að passa þau bæði en núna er klukkan 19 og Jódís er sofnuð, þannig að þetta byrjar allavega auðveldlega;) Þau eru algjör krútt saman tvo að strípalingast út um allt.
UUUU....hvað á ég að tala um. Kannski að ég byrji á þvi að segja þeim sem ekki vita að við Anna erum búnar að segja upp íbúðinni okkar óg ákváðum s.s. að koma ekki aftur eftir jól út. Það eru ýmsar ásæður fyrir því...en samt eignlega engin sérstök. Við komum kannski bara seinna og þá langar mig roslega að fara í lýðháskóla. Ég skoðaði einn sem ég hafði mikinn áhuga á að fara í en ég var sett á biðlista þar og svo þarf ég kannski að safna mér aðeins af aurum áður:P Ég fer s.s. heim 29.nóv í brúðkaupið og ákvað þá að vera ekkert að koma aftur, þannig að þá verð ég alkomin. Ég ætla að fara heim á Patró og vinna þar í desember og koma svo í bæinn eftir áramót. Það er líklegt að ég sé komin með stað til að búa á en það er ekki alveg komið í ljós. Ég fer þá aftur í körfuna og ætla að leita mér að vinnu:) Ég hlakka mikið til að komast aftur í ,,rútínu" og almennilega heilbrigt líferni,hehe. Anna fer líklegast með Jóa á Hvolsvöll að vinna til að byrja með. Hún ætlar samt að fara í heimsókn til Sjafnar frænku sinnar sem býr í Þýskalandi þegar ég fer heim og kemur til Íslands 14.des. Við erum allavega spenntar að koma heim og búumst að sjálfsögðu við allsherjar partýi fyrir okkur við heimkomu ;)
Ég verð að viðurkenna það að ég er að rotna í þessari vinnu sem ég er í. Eg ætla að hætta að vinna 21.nóv og þá hef ég viku áður en ég fer heim í að gera e-ð sniðugt. Við ætlum t.d. að fara á landslekinn í fótbolta hérna, Danmörk-Ísland, hann verður 21. og verður spennandi að fara á sinn fyrsta fótboltaleik:) Það verður örugglega steming í því...
Ég verð að segja frá einu skemmtilgu atriði. Við fórum til Kolding um seinustu helgi að hitta Gísla frænda hans Jóa(Gísli sem var i Haukunum, fyrir Haukafólk). Hann átti afmæli og við fengum að vera hjá honum. Jói kom frá sínum skóla og við Anna tókum lest em tók ca. 2 tíma. Kolding er um 50 þús manna bær og gaman að koma þangað. Um kvöldið hélt Gísli partý og komu aðallega gaurar sem eru með honum í skólanum. Þar voru margar skemmtilegar týpur. Finnskir strákar, allir að fikta í fína skegg-hökutoppnum sínum, annar finnskur hommi sem hafði það sem aukavinnu að sitja fyrir nakinn, Þjóðverji sem gerði endalaust grín af Hitler og setti alltaf tvo putta á efrivörina og sagði e-ð fyndið, danskur körfuboltastrákur með svo mikið gel í hárinu að það hefði brotnar hefði ég komið við það og svo einn fertugur karl sem hét Pétur. Pétur kom fyrstur í patrýið. Gísli sagði að hann kæmi alltaf fyrstur. Hann kom inn og heilsaði og Gísli sagði okkur bara að tala íslensku við hann. Hann byrjaði að spjalla á dönsku þannig að við ákváðum að gera okkar besta og spreyta okkur í dönskunni. Við byrjuðum að sjálfsögðu að kenna honum að segja skál á íslensku. ,,Det er símaskrá". Það er þekktur djókur hjá Íslendingum hérna í DK að kenna Dönum að segja símaskrá í staðinn fyrir skál, mjög fyndið. Eftir soldinn tíma fór Anna inní herbergi að tala við Jóa ogvið sátum bara þrjú að spjalla inní eldhúsi ég, Gísli og Pétur. Ég var þvílíkt sleip í dönskunni og hann hrósaði mér fyrir hvað ég væri líkleg. Ég hló mikið af því þegar hann skálaði síðan alltaf við mig, siiiiimaaaasðaaaaa. Við töluðum um hvað Danir töluðu skringilega, keeeeeeffeee(kaffi) og svona. Hann tók e-ð íslenskt Andrés blað sem á þarna á borðinu og fór að reyna að lesa íslenskuna. Það var mjög fyndið og ég var að leiðrétta hann og reyna að kenna honum. Þegar leið á patrýið og fólkið var komið skrapp Pétur e-ð út og kom aftur eftir klukkutíma. Rétt áður en hann kom sagði Gísli við mig: ,, Svanhvít, hann er íslenskur!!"
WHAT?!?!?!? Svanhvít var teeeekiiiin ! hahahhahahah!
Þegar hann kom inn þá sagði ég, nei sæll aftur. Hann svaraði mér á íslensku og ég bara djöfulsins fíflið þitt!
Mér leið asnalega í hálftíma eftir þetta að tala íslensku við hann, hann VAR DANI !
Það eru Mugison tónleikar á morgun og ég er að reyna að draga Önnu með mér!!!!
Ég hef verið frekar léleg í því að taka myndir, fer að bæta mig í því og set kannski e-ð inn áður en ég fer heim.
Allt orðið jóla jóla hér.
Er þetta ekki bara orðið fínt?
Svanhvít Sjöfn
Svanhvít Sjöfn og Anna Stefanía
29. október 2007 klukkan 15:06
Aftur er bloggad fra yndislegu lestarstødinni !
Ja, vid Anna erum s.s. badar farnar ad vinna i lyfjafyrirtækinu. Tetta er agæt vinna. Vid turfum ad vakna mjog snemma a morgnanna en erum ta bunar kl.14 a daginn, sem er gott! Tetta er riiiiiiisa fyrirtæki og vid erum adeins i einni byggingunni eda a einu svædi, sem er samt rosalega stort. Vid turfum ad vera i øllu hvitu. Faum hvitar buxur, bol, sokka og klossa. Svo tegar madur fer inn i serstøk svædi ta turfum vid ad vera med harnet, skipta um sko, stundum fara i sloppa og alle græjer :)
Eg fekk ekkert sma flotta og ædislega afmælisgjøf fra Guggu frænku og co. Hun og Gunnar eru ad fara ad gifta sig 1.des og eg sa fram a ad komast ekki i brupkaupid...og tad fekk mig eiginlega bara næstum til ad grata...en svo ringdi Gugga i mig og tilkynnti mer tad ad hun ætladi ad gefa mer flug heim til ad geta komid og ta fekk tad mig bara næstum til ad grata lika ;)
Vid forum ekki til Tyskalands um helgina. Adalsteinn og Maggy ætludu ad leggja af stad eldsnemma a føs morgun og vid vildum ekki vera ad bidja um fri i fyrstu vikunni okkar tannig ad vid sleptum tvi. Vid gerdum nu samt e-d skemmtilegt um helgina ti ad mamma og pabbi hans Joa eru herna nuna og voru lika med bilaleigubil og vid skelltum okkur i sma biltur med teim i gær i dyragard sem er 2 klst fra. Eg tok myndir en eg veit ekki hvenær eg set myndir inn næst af tvi ad vid erum ekki med net heima. Kannski næst tegar eg fer til Maggyjar:P
Vid eigum aldeilis skemmtilegan nagranna, skal eg segja ykkur ! Skemmtilegi nagranninn okkar sem byr fyrir ofan okkur hlustar mikid a tonlist. Allt i lagi med tad. Hann hlustar allavega ekki a brjalad tungarokk eda e-d sem madur ærist af heldur bara svona rolegar ballødur.
Eftir nokkra dvøl i ibudinni okkar for okkur samt ad hætta ad lika svona vel vid skemmtilega nagrannann. Ju, af tvi ad skemmtilegi nagranninn a greinilega bara einn geisladisk med tessum rosalega skemmtilega og fallega duett og ekki nog med tad heldur a skemmtilegi nagranninn kannski bara EITT lag a tessum disk!!! JESS! Hann hatar tad ekki ad koma heim eftir erfidan vinnudag og skella laginu a , hækka svolitid i græjunum og MED replay!!!!! Einn daginn heyrdum vid ad einhver annar saklaus nagranni eins og vid var kominn med nog og gargadi ut um gluggan e-d a dønsku sem eg held ad hafi tytt ad drullast til ad lækka i græjunum! hehe
Eg for a kørfuboltaæfingu med strakunum a føstudaginn og tad var rosa fint. Eg er ad fara aftur i kvøld. Strakarnir budu mig velkomna og søgdu ad tad væri gaman ad sja fyrstu stelpuna mæta a æfingar til teirra. Hehe, eg veit ekki hversu mikid til var i tvi en eg meina hey, ta gefa teir mer bara einn ollara i mallakut og ta fer eg grenjandi heim. Eg get samt ekki sagt ad eg hafi vaknad hardsperrulaus og svona daginn eftir...en eg hata tad ekki ad dekka veeeeeel sveitta gaura, bera ad ofan...OJJ !En tad er vist betra en ad vera i lidinu sem er bert ad ofan ;)
Jæja, annars er allt fint ad fretta fra okkur.
Timinn er ad verda buinn.
Anna bidur ørugglega ad heilsa, tad er allt fint ad fretta af henni... ef hun hefur tørf fyrir ad segja serstakar frettir fra ser, ta bloggar hun bara:P
Svanhvít Sjöfn og Anna Stefanía
22. október 2007 klukkan 17:17
I dag blogga eg fra Hovedbanegården. Vid komumst ekki lengur a netid heima, spurning hvort ad nagranninn hafi fattad ad vid værum ad stelast :P
Tad var vaknad kl.4.30 a okkar heimili i morgun, vid forum ad vinna i Bella Center vid trif. To svo ad tad var slatti af klosetttrifum ta var tad allt annad af tvi ad vid vorum tvær. A morgun fer eg orugglega a skarri stad. Besta timakaupid, sagdi karlinn og ekki leidinleg trif. Tetta er i lyfjafyrirtæki og a ad vera agætt, engin erfid trif, eins og hann ordadi tad. Hann baud mer, ef eg vildi, ad eg gæti jafnvel verid ta tarna fram ad jolum!! Vonandi verdur tad fint. Anna fer aftur i motuneytid sem hun var i. Tad er liklegt ad hun geti fengid vinnu lika i lyfjafyrirtækinu, sem er gott :)
Afmælisdagur i dag. Engin breyting fra tvi ad vera 19 ara...en kannski akvedinn afangi, eg veit tad ekki... Takk fyrir allar afmæliskvedjurnar :)
Vid Anna vorum vodalega svartsynar og i leidindaskapi i gær. Tad er reyndar buid ad lagast adeins. Kannski sma heimtra, eg veit tad ekki...
Eg vona ad vid naum netinu aftur heima, tad munar svo ad hafa skype-id lika !
Pabbi hennar Ønnu er ad koma a morgun og verdur herna i tvær vikur. Hann og Maggy ætla ad fara til Tyskaland til ad hitta Sjøfn og fjølskyldu og erum vid ad pæla ad skella okkur med :) Sma biltur:P Alltaf gaman ad skoda nytt land. Pabbi, ta førum vid Anna i nynasistaferdina sem tid ætludud i ;) Djok !
Annars bidjum vid ad heilsa.
Eg sakna allra soldid mikid...
Svanhvit afmælisbarn :)
Svanhvít Sjöfn og Anna Stefanía
17. október 2007 klukkan 16:29
Eftir lítinn sem engann svefn beið ég eftir að vekjaraklukkan hringdi kl. 04:50 í morgun! Við Anna erum búnar að snúa sólarhringnum alveg við og þ.a.l. gat maður ekki sofnað í gærkvöldi, þannig að þá var smááá erfitt að koma sér á fætur í ,,nótt" :)
Fyrsti vinnudagurinn minn og annar hjá Önnu. Við s.s. fengum vinnu hjá fyrirtæki sem heitir Vikargruppen. Það má kalla þetta eins konar ráðningarskrifstofu. Við héldum fyrst að þeir væru bara með svona rengöring en fólk er að vinna við margt annað eins og t.d. í mötuneytum, með fötluðum, garðvinnu, alls konar þrif á mismunandi stöðum og verkamannavinnu. Karlinn fann strax laust fyrir Önnu að vinna á þriðjud í mötuneyti einhvers staðar í Lufthavnen, það var ákveðið stress að komast þangað en það reddaðist á endanum. Hann hringdi svo í mig í gær og spurði hvort ég vildi prófa í tvo daga að þrífa í Tivoli. Ég tók því og ég get sagt það að ég hlakka ekkert rosalega að fara aftur í fyrramálið! Anna pí** fer aftur í sama mötnuneytið sem hún var að vinna í í dag og henni líkar ágætlega þar. Þar fær hún að skera niður grænmeti, setja brauð í ofn, þurrka af borðum og í versta falli hjálpa uppvask-dömunni ;)
Ég get ekki sagt að ég hafi skemmt mér eins vel í morgun, ég er ekki að kvarta en þeir sem þekkja mig vita hversu hrikalega klígjugjörn ég er á allt í sambandi við klósett og að þrífa það og svona. Í dag fékk ég sko að þrífa klósett !!!!!!!! Jahh, það gekk ágætlega með grettum og tilheyrandi klígju og skemmtilegheitum. Ég kúgast eiginlega aftur við tilhugsunina. Þetta voru ekkert ógeðslega klósett en þetta voru almenningsklósett og það er nóg fyrir mig. OG helvítis pissuskálarnar!! mmmmm :) Konan lét mig fá tvær tuskur og tvo viskastykki og svo var ég með svona gamaldags skúringagræjur. Sko, ég var að þrífa örugglega tuttugu klósett í dag eða meira og þá er ég ekki með fjórar tuskur þegar ég þarf að þrífa vaska og klósett inní og utan. Ég var farin að nota bara bréf. Ógeeeeheeeð! hahaha Síðan í endann var ég að skúra, þetta var svona lítið leikhús í Tivoli og ég ætlaði að fara að skifta um vatn, síðan kom e-r hundleiðinlegur karl með hatt og fussaði og spurði af hverju við værum svona lengi(mér var sagt að við værum á góðum tíma, við vorum bara tvö með allt leikhúsið og ég gerði aðeins meira en hann, hann var í 4 tíma að sópa hjá sætunum), ég sagði bara, ég veit það ekki, þetta er fyrsti dagurinn minn. Hann spurði hvaðan ég væri og þá kom reyndar betri svipur þegar hann heyrði að ég væri fra Island. En þá hætti ég við að skipta um vatn! Ég horfði ofan ég skítuga vatnið hjá vinnufélaganum mínum og hugsaði, pfff, ég geri þá bara eins og hann og dreifi skítnum um gólfin! híhí Guð, ekki segja neinum.
Nóg um það, við mætum hressar aftur í vinnuna í fyrramálið og vonum að fá e-ð betra seinna. Það getur verið að seinna meir getum við unnið á sama stað en ekki svona fyrst sagði karlinn. Þetta er þannig að við fyllum út á blað eftir hvern dag hversu marga tíma maður vann og hjá hvaða fyrirtæki og svo þarf yfirmaður að skrifa undir, síðan sendum við á hverjum föstudegi blaðið til Vikargruppen.
Æi, þetta er örugglega hundleiðinlegt og aðeins of mikið um mína vinnu. Anna verður þá bara að blogga um sína reynslu í mötuneytinu ;)
Svanhvít Sjöfn þreytta!
Svanhvít Sjöfn og Anna Stefanía
15. október 2007 klukkan 16:14
Erum komnar með vinnu!!!
Meira um hana síðar, þ.e.a.s. þegar við vitum nákvæmlega hvað þetta er ;)
Svanhvít Sjöfn og Anna Stefanía
08. október 2007 klukkan 16:43
Ég ætlaði að setja inn myndir á þessa síðu, en ég virðist vera búin með plássið þannig að ég þurfti að stofna nýja myndasíðu:
http://myndir.ekkert.is/svaansyÉg kann ekki alveg nógu vel á þetta strax. Ég var heillengi að setja myndirnar inn svo sá ég að þær komu í vitlausri röð en það verður bara að hafa það :)
Ég vil taka það fram að allar myndirnar eru teknar á myndavélina hennar Önnu Stefaníu..en ég vil einnig vekja athygli á því ég ÉG tek þær allar...Anna er svo tæknivædd að það nær engum áttum!!!!
Svanhvít
Svanhvít Sjöfn og Anna Stefanía
07. október 2007 klukkan 20:57
Sunnudagur í dag og er hann að mestu leyti búinn að fara í leti, eins og svo margir sunnudagarvilja alltaf láta mann gera !
Við fórum í afmælisveislu til Jódísar litlu á laugardaginn og voru þar saman komin fullt af Íslendingum. Eins og það var gaman að fylgjast með litlu krílunum borða súkkulaðikökur og sprengja blöðrur þá vildi athyglin samt fara að miklu leyti út á götu þar sem mikil mótmælaganga og læti fóru fram. Ungdomshus fólkið er enn og aftur farið á stjá og ætluðu þau að yfirtaka tómt hús sem er mjög stutt frá blokkinni hjá Kristínu og Kára(foreldrum Jódísar). Fyrst vorum við bara úti í glugga að fylgjast með göngunni því fólk var klætt í alls konar búninga og dundi mikil tónlist og læti út um allt hverfið! Það var saman komið ekkert smá mikið af fólki, alls kyns fólk, ungt sem gamalt. Það voru löggubílar út um allt í kringum þetta og greinilega mikil gæsla. Allt í einu sáum við að allt fólkið fór að streyma til baka! Við skyldum ekki hvað var í gangi og fórum út til að kíkja aðeins á þetta. Þar sáum við að allir voru búnir að reyna að setja klúta og peysur fyrir munn og nef og flýttu sér til baka. Löggan hafði spreyjað táragasi yfir allt saman! Við sáum t.d. svo börn koma grenjandi með foreldrum sínum því táragasið fór út um allt og það er svakalegt að lenda í þessu. Allt í einu bara búmm, fann ég gasið koma og mann sveið strax í augun og hálsinn, þannig að við hlupum bara inn aftur! Það voru hunduðir manna handteknir og e-r leiðindi voru í gangi! Öll umferð var stopp á þessu svæði og eftir að allir fóru til baka ákváðu þau að fara út að hraðbrautina þannig að allt var stopp þar líka. Enginn strætó gekk á svæðinu þannig að við þurftum að labba frekar langt í metro til að komast til baka heim. Það á eftir að koma í ljós hvernig þetta fer allt saman en þessir krakkar virðast ekkert ætla að gefast upp!
Jói er búinn að vera hérna um helgina hjá okkur og tók hann með sér nokkra vini sína úr skólanum sem hann er í. Tvo íslenska stráka og tvo pólverja. Við fórum út að dansa í gær og já, við fórum sko að dansa!! Þetta var sko alvöru, ég hef aldrei dansað svona mikið og aldrei svitnað svona mikið! Einn pólverjinn er eróbik-kennari og mjög svo áhugaverður karakter! Hann er búinn að læra ferðamálafræði held ég og er ekki eins og flestir pólverjar sem maður er vanur! Hann kunni sko að dansa! Hann tók mig að dansa og mér leið eins og ég væri í myndinni Along came Polly í salsaatriðinu:) hahahah, hann gjörsamlega strjórnaði manni og eg sveiflaðist fram og til baka í takt við ómótstæðilegar hreyfingar pólverjans! Ég henti Önnu að sjálfsögðu svo í fangið á honum svo hún fengi að upplifa það að dansa við strák sem KANN að dansa! Þetta var rosa gaman og þakka ég guði fyrir að hafa verið í svörtum kjól! Annars hefði maður ekki litið vel út, reeeeeeennandi sveittur! Þeir eru búnir að vera að skoða sig um í Kaupmannahöfn um helgina og fara í fyrramálið aftur uppeftir á Jótland.
Frá fallegu íbúðinni okkar er það að frétta að okkur líður alltaf betur og betur hérna. Erum búnar að gera þetta aðeins meira kósý. Fórum í IKEA og eins og fólk kannast við fann maður sko fullt af sniðugu dóti þar. Það er frekar ljótt teppi á gólfinu, alls staðar nema í eldhúsinu og á klósettinu(núúúú???:)) en Anna fékk þá sniðugu hugmynd að kaupa stóra mottu á gólfið inní stofu og það er allt annað! Anna er að fríka út af öllum pöddunum og kóngulónum sem hún sér...einhvern veginn tekst mér að taka ekki eftir því sem hún sér fyrr en hún sýnir mér það, þannig að mér er troðið innar í rúminu því það er allt morandi í kóngulóarvefum,hehe:) Fröken ryksugubani er notaður til að fjarlægja svoleiðis óþverra!
AF ATVINNUMÁLUM er það að frétta að við sendum ferilskrárnar okkar í póst á fullt af stöðum á föstudaginn og svo skráði konan okkur líka þarna á netið og við erum búnar að senda e-mail á nokkra staði líka. Fengum strax hringingu frá Bianco skóbúðinni en þá hélt hann að við töluðum 100% dönsku, þó svo að annað kom fram á ferilskránum þannig að það gekk ekki! En svo erum við að fara í viðtal á rosa flottan veitingastað á Nýhöfn á morgun. Hann veit að við tölum ekki dönsku og að við viljum helst vinna á sama stað en hann vildi samt fá okkur, þannig að ég vil að þig hugsið vel til okkar á morgun, við vonum það besta :)
Já,híhí, ástæðan fyrir því að ég er að blogga héðan úr íbúðinni okkar á Augustegade er sú að ég prófaði að kveikja á tölvunni og þar sem við búum í blokk var fullt að networks en flest þeirra að sjálfsögðu læst...en einn þeirra er soldill kjáni greinilega að vera með opið, þannig að svona blankar, en heppnar stelpur eins og við, vorum aldeilis glaðar með kjána-nágrannann okkar ;)
Ég ætla að setja inn myndir:)
Svanhvít
Svanhvít Sjöfn og Anna Stefanía
02. október 2007 klukkan 19:45
Mér finnst október svo æðislegur mánuður !!!
Jább, því þá á allt besta fólkið afmæli...eins og t.d. ég, Una Lind og Benedikt...og líka....uuuu. Jódís Assa, litla frænska hans Jóa...OG Jónas afi hennar Önnu... og það besta! Zach í Hanson hjómsveitinni! ummhmm...eða, er hún ennþá til..?
Mér finnst október 2007 líka svo æðislegur mánuður af því að þá fáum við Anna vinnu!!!!!
LÍKA, af því að við erum búnar að festa íbúúúð!!! Við duttum inn á ótrúlega flott tilboð. Fengum næstum bara íbúð uppí hendurnar sem gæti ekki verið betri! Hún er hérna liggur við í næstu götu við Maggý, hún er með húsgögnum og öllu, meira að segja þvottavél!!! Og hún er ekki með sturtu inní svefnherbergi eins og er í mjög mörgum litlum íbúðum hérna! Hún er laus strax og við fórum að skoða hana í dag og hringdum í strákinn áðan og festum þetta! Þetta var íslenskur strákur sem að vinkona Önnu lét okkur vita af að væri að reyna að finna leigjendur!
Við erum líka búnar að láta búa til fyrir okkur danska CV, sem er ferilskrá. Hún er mjög flott, enda kostaði hún handlegg, að minnsta kosti hálfan ;) Við ætlum að prenta þær út á morgun í milljón eintökum og dreifa um borgina...eða svona næstum!
Bið að heilsa öllum:)
P.s. Það tekur okkur örugglega smá tíma að setja upp netið í íbúðinni... en þá koma myndir og svona.
Jæja, fariði að panta ykkur ferð til okkar kæru vinir, það er svefnsófi í stofunni!
Svanhvít! (hmmm, ekki Anna???)
Svanhvít Sjöfn og Anna Stefanía
26. september 2007 klukkan 18:30
Daguirnn í dag er búinn að vera fínn.
Ég vaknaði(eins og ALLTAF) á undan Önnu og fór niður í búð að kaupa beyglur og ost og svona til að færa Önnu góðan morgunmat. Það reyndar endaði með því að ég borðaði ein morgunmatinn(eins og ALLTAF) af því að Anna gat ekki drullað sér á fætur(eins og ALLTAF) :)
Ég fékk símtal frá Hard Rock og við vorum boðaðar í viðtal á föstudaginn. Ég fór inní herbergi til Önnu og sagði henni fréttirnar og þá loksins vaknaði hún !
Eftir smá tíma settumst við á hjólin og hjóluðum niðrí bæ. Röltum aðeins þar um og þar tókst mér að kaupa mér jakka og bol...ég ætlaði ekkert að versla en ég sá það að þetta væru góð kaup í þetta skiptið:P ,,Nei ég meina Anna, þetta eru góð kaup, ódýr jakki en ég veit ég á eftir að nota hann mikið". Ein að reyna að sannfæra sjálan sig í leiðinni:)
Svo var ég ekki búin að segja ykkur að við villtumst í fyrsta skipið smá í fyrradag...ætluðum að hjóla e-a aðeins öðruvísi leið heim og allt í einu sáum við það að við vorum komnar soldið mikið út úr...en það var ekkert stress í gangi...bara gaman að villtast smá:) Ég verð samt að viðurkenna það að ef Anna þekkti ekki aðeins til hérna þá væri ég soldið "lost" stundum af því að það er svo mikið einhvern veginn allt alveg eins, öll húsin og svona, snýst í hringi stundum.
Það er búið að bjóða mér að kíkja á basket æfingar með strákunum í Guðrúnu, íslendingafélaginu hérna í Köben... ég er alveg að vera geðveik á engri körfu en þetta eru bara stákar. Þetta er bara tvisvar í viku og ekkert alvarlegt sögðu þeir. Ég er svosem vön því að spila bara með strákum heima á Patró,hehe :)
Fórum á tónleika með Fríðu, vinkonu Önnu, í Tivoli á föstudaginn. Tónleikarnir voru með Nick og Jay sem eru gríðarlega vinsælir hérna í Danmörku af unga fólkinu....ég get ekki sagt að þetta hafi verið það besta sem ég hef heyrt og það fyndna við þetta var að við Anna vorum að gera grín af e-u lagi um daginn. Ég kom labbandi úr e-i búð þar sem eitt klígjulegasta lag í heimi hljómaði á meðan fólk var að versla. "Jeg kommer hjem i nat, lalalala" og neinei, byrjaði það ekki að hljóma og allar 14 ára stelpurnar öskruðu úr sér líftóruna.AAAAAAAAAA!!!!
Dæmi um textana í lögunum hjá þessum einstaklega töff fyrum:
"Jeg elsker dig, jeg elsker dig,men elsker du virkelig mig"
"I lovja, i lovja, I fríkin fokkin lovja"
"Du er so lega, lega, lega, lega, lega" Sem þýðir ómótstæðileg eða flott.
Skemmtilegt.
Jæja, ég hef ekki mikið meira að segja. Anna lúði segist biðja að heilsa öllum sem kíkja hérna inn.
Ég segi bara:
RÉTT UPP HENDI SEM VILL AÐ ANNA BLOGGI BARA SJÁLF?!?
Bless :)
Svanhvít Sjöfn og Anna Stefanía
20. september 2007 klukkan 15:14
Kæru lesendur, ekki örvænta, við erum hér!
- Við erum ekki búnar að koma okkur fyrir í Christianíu og fá vinnu við að selja hass á götum Kaupmannahafnar
- Við erum ekki búnar að fá vinnu í einum af milljón talíbana-kebab-sjoppunum hérna
- Við höfum ekki afrekað að ræna gömlu tjaldi frá Roskilde og búnar að koma okkur vel fyrir í krúttlegum almenningsgarði í úthverfi Køben
- Við erum ekki farnar að hjóla um á fínu hjólunum okkar í pinnahælunum og þröngu gallabuxunum með nærbuxurnar til sýnis fyrir alheiminn.
Heldur erum við bara hér:)
Ekki er mikið að frétta frá okkur þessa dagana fyrir utan atvinnuumsóknir, óhollustu, svefn, samkynhneigð og skaðbrennda rassa:)
Atvinnuumsóknir:
Já, við erum búnar að vera að sækja um á hótelum, rengøringsfirmum og veitingastöðum. Ég fékk aftur símtal frá einu reyndar mjög fínu hóteli sem ég hafði sent e-mail til og þau buðu okkur hlutastarf...ég sagði við hana að við værum helst að leita af fullu starfi en hún ætlaði að geyma umsögnina hjá sér. Svo fórum við á vetingastað sem okkur var bent á að fara sem er við Tivoli. Hann er i tivolikeðjunni en er líka opinn samt allan veturinn! Við komum tarna inn og báðum um yfirmannin, sem kom svo í ljós að var Íslendingur. Sem var gott :) Við erum allavega búnar að senda henni ferilskrárnar okkar og við vonum það besta. Þetta eru mjög langar vaktir og erfið vinna sagði hún, en samt sem áður örugglega mjög gaman. Fullt af ungum krökkum og skemmtilegur mórall sagði hún. Það tekur kannski nokkra daga í að hún hringi í okkur...
Óhollusta:
Mikið er búið að borða af EKKI hollum mat! Alltaf er markmiðið sett á að hætta því en eitthvað gengur það nú rólega... Vonum að þegar maður( já þegar) er kominn í rútínu að það breytist!!!
Svefn:
Aldrei hef ég fengið að sofa svona mikið út á hverjum degi eins og upp á síðkastið... Sem er gott...nema...að ég sef eins og vanalega ekki vel á nóttunni á svefnsófanum sem við erum í...við prófuðum að taka dýnuna úr og setja hana á gólfið í nótt, það var miklu skárra!
Samkynhneigð:
Annað hvort löðumst við Anna svona rosalega mikið að gay fólki eða þá að innst inni eigum við eftir að koma úr skápnum. Hmmm? Fyrst þegar við loksins fundum einhvern skemmtistað sem var skemmtilegur og ekki litlir strákar með þrjár geltúpur í hausnum, sem gætu drepið mann með hárinu, eru morandi í þá furðuðum við okkur á því hversu rosalega mikið hlutfall af karlkyninu væri þarna inni...okkur fannst það kannski ekkert svo slæmt þar sem óvenjulega mikið af þeim var afskaplega myndarlegt. Jújú, eftir aðeins lengri viðveru, og já, ég get sagt það, smá svekk, að minni hálfu, kom það í ljós að þetta var gaystaður! Djöfull! :)
Okei, allt í lagi með það, við fórum þangað samt aftur í þeirri von um að hommarnir hlytu nú að eiga gagnkynhneigða vini...nei segi svona. Næsta skiptið var þannig að við lentum á spjalli við e-a Norsara, já það var ágætt....fyrir utan það að jahhh...sumir þeirra voru ómeðvitaðir um kynhneigð sína(að okkar mati) þá fengum við spurningu sem ég hef ákveðið að setja ekki hingað inn á veraldarvefinn, en þið vitið, tveir strákar og ein stelpa.... DRULLUM OKKUR HÉÐAN Í BURTU! hahahaha! Svo á mánudaginn ákváðum við að kíkja á kaffihús og fá okkur einn öl..ákváðum að fara á stúdentabar sme við höfðum heyrt að væri ódýr bjór á...Eftir smá spjall þar og fínerí, kemur gæi upp að eyranu að mér: "Do you like boys or girls?".... Jahh, eftir smá umhugsun, hahaha, sagði ég: "boys", þá sagði hann okei hot...og labbaði í burtu! Þegar við löbbuðum út stóð á skilti fyrir utan, Gay night on mondays! Gat nú verið :)
Skaðbrenndir rassar:
Við Anna ákváðum að skella okkur í ljós, svona aðeins til að fá hita í kroppinn. Já, hita í kroppinn!! Það fengum við sko aldeilis! Ég hef aldrei lent í þessu áður, við áttum báðar erfitt með að sitja á bossalingnum um kvöldið og vorum berandi aloe vera á rassinn á hvor annari:)
jæja, núna held ég að ég sé búin að bulla nóg. Ég vil taka það fram að ég þarf að viðurkenna það að ég hef stundum, bara ööörlítið,verið að ýkja sögurnar, en samt sem áður er þetta að mestu leyti sannar sögur:)
I kvöld erum við svo heppnar að fá að vera í íbúðinni hjá systur hans Jóa í 10 daga, sem við erum mjög þakklátar fyrir:)
Bið að heilsa,
Svanhvít í ruglinu
Svanhvít Sjöfn og Anna Stefanía